Setrið – Grein sem birtist í Geðhjálp
Fólk sem býr út á landi og veikist af geðsjúkdómi stendur oft frammi fyrir því að þurfa að sækja sér geðheilbrigðisþjónustu um langan veg. Fyrir veikan einstakling getur það verið bæði kvíða- og streituvaldandi, jafnvel ógerlegt. Samfara veikindunum detta margir út af vinnumarkaði til lengri eða skemmri tíma, ákveðin einangrun og fjárhagslegt óöryggi blasir við þeim. Mikilvægt er því að fjölga batahvetjandi úrrræðum fyrir fólk með gerðraskanir í þeirra nærumhverfi. Með því skapast auknir möguleikar á skilvirkari eftirfylgd eftir innlögn á geðdeild. Einnig gefst einstaklingum betra tækifæri til að vinna
heildrænt að sínum bata í raunverulegum aðstæðum, nær fjölskyldu og vinum sem oft er þeirra mikilvægasti stuðningur og tengslanet. Þeir sem eru félagslega einangraðir og með veikt tengslanet geta þá nýtt þau úrræði sem eru í þeirra heimabyggð sem sitt tengslanet og einnig fengið stuðning við að rjúfa einangrun sína í raunverulegum aðstæðum.
SetriðForsögu Setursins má rekja til þess að í janúar 2005 var stofnaður stuðningshópur fagaðila um geðheilbrigði í Þingeyjarsýslum. Hópurinn sem kallar sig Bakhjarl samanstendur af aðilum frá Fjölskylduþjónustu Þingeyinga, Húsavíkurdeild Rauða Kross Íslands, Heilbrigðistofnun Þingeyinga, Sjálfsbjörgu og sóknarpresti Húsavíkur. Megin markmið Bakhjarls er að beita sér fyrir bættri geðheilbrigðisþjónustu í Þingeyjasýslum og fjölga þar batahvetjandi úrrræðum. Þar var geðræktarmiðstöð m.a. upp á borðinu.
Undirbúningur að opnun geðræktarmiðstöðvar á Húsavík hófst á haustdögum 2006 í samstarfi við notendur og var formlega opnuð þann 10. október 2006. Um er að ræða tilraunaverkefni til 15 mánaða eða til loka desember 2007. Að þeim tíma loknum verður reksturinn endurskoðaður með tilliti til framhalds. Að verkefninu koma Fjölskylduþjónusta Þingeyinga, Félagsmálaráðuneytið, Húsavíkurdeild Rauða Kross Íslands, Bakhjarl og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Samfélagið í heild hefur svo átt drjúgan þátt í að styðja við þetta verkefni með styrkjum, gjöfum, vinnuframlagi og almennt miklum samhug. Starfsfólk Seturs eru: Erla Alfreðsdóttir, iðjuþjálfi og forstöðumaður, Þorgrímur Sigmundsson, félagsliði og Alma Lilja Ævarsdóttir, stuðningsfulltrúi. Einnig höfum við haft sjálfboðaliða og nemendur í verknámi hjá okkur. Í dag er opnunartíminn frá klukkan 12:00 -16:00 alla virka daga.
Ákaflega fjölbreyttur og hæfileikaríkur hópur er að nýta sér Setrið og er meðalfjöldi notenda 8-9 manns dag hvern. Sumir koma reglulega og má segja að þetta sé þeirra vinnustaður þar sem þeir vinna markvisst að sínum bata. Aðrir koma þegar þeir hafa tök á eða finna þörf fyrir að koma.
Mikil vinna hefur verið lögð í að móta starf Setursins og er í stöðugri þróun. Lagt er upp úr að notendur séu virkir þátttakendur í að móta starfsemina og að þjónustan sé löguð að þeirra þörfum. Við sem þar störfum leggjum okkur fram um að vinna að valdeflingu einstaklingsins, hann fái tækifæri til að nýta styrkleika sína, þroska þá og öðlast sem innihaldsríkast líf. Í Setrinu vinnur fólk m.a. við handverk af ýmsu tagi, myndvinnslu og heimasíðugerð í tölvu, bakstur og eldamennsku, útivist og slökun ásamt ýmsum öðrum verkefnum. Einnig hafa verið farnar styttri ferðir til að njóta menningarviðburða s.s. í leikhús og á listasýningar. Til að efla starfið eru ýmis námsskeið og fræðsla reglulega í boði fyrir notendur.
Í Setrinu er lögð áhersla á að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur hverju sinni. Boðið er upp á faglega þjónustu iðjuþjálfa með einstaklingsviðtölum og hópastarfi. Einnig er hægt að kalla til aðra sérfræðinga innan Félagsþjónustunnar til að veita sérhæfða ráðgjöf, s.s. sálfræði-, fjármála- og félagslega ráðgjöf. Auk þess lesgreiningu og lestrarkennslu fyrir fullorðna með lestrarerfiðleika.
Í ljósi þess að þjónustusvæðið er stórt er erfitt fyrir þá sem lengst búa frá Húsavík að nýta sér Setrið. Mikilvægt er því að finna lausn á því hvernig koma megi til móts við þá sem búa langt utan Húsavíkur.
Frá notendum um Setrið:Það skal tekið fram að ég er ekki fastur gestur í Setrinu. Ég hef hinsvegar mikla ánægju af komum mínum þangað þótt venjulega stoppi ég fremur stutt. Það kemur til af því að mikið er að gera og vinnudagur venjulega langur hjá mér. Það sem mér finnst Setrið hvað mest gera fyrir mig, er þar hitti ég annað fólk sem á við einhver geðræn veikindi að stríða þannig að maður upplifi sig ekki þann eina sem ekki hefur ávallt liðið vel. Þarna getur maður rætt líðan sína ef maður vill og hefur þörf fyrir. Ég tel að komur mínar í Setrið hafi orðið til þess að mér líður betur í dag. Það er líka eitthvað sem dregur mig að þessum stað, eitthvað sem ég geri mér ekki fullkomna grein fyrir hvað er. Sem sagt góður staður.
Kveðja Stefán Bj Steindal.
Mér finnst frábært að geta notað Setrið. Þangað er mjög gott að koma og vera og það er mikið gert með okkur þar. Ég kem þangað til að hitta fólk og svo fer ég í viðtöl hjá Erlu iðjuþjálfa. Ég geri ýmislegt, eins og að mála á keramik, prjóna, sauma, mála á gifs og spjalla við fólk, spila og margt fleira skemmtilegt. Ég er mjög fegin því að Setrið fór af stað því þar kynnist maður fullt af fólki. Ég vil að lokum þakka öllum þeim sem starfa á Setrinu því hjá þeim er best að vera og vinna í sínum málum með þeim.
Steinunn
Þakklátur fyrir Setrið.
Ég vil segja frá því hvernig komið var fyrir mér áður en Setrið var opnað hér á Húsavík. Árin 1993-94 varð ég fyrir hverju áfallinu af öðru og lenti í vítahring sem ég gat alls ekki komið mér uppúr og lenti í svartnætti sem þeir einir skilja sem reynt hafa. Það endaði með því að ég reyndi sjálfsvíg. Eftir að ég var lífgaður við var ég settur á geðdeild í fyrsta skiptið en það hafa verið skin og skúrir síðan, þó aðallega skúrir, inn og út af spítölum og geðdeildum einu sinni til tvisvar á ári. Það var núna í október síðastliðinn að ég var lagður inn á spítala eftir sjálfsvígstilraun og á geðdeild í framhaldinu þar sem ég var í viku en þaðan fór ég beint á sjúkrahús Húsavíkur. Þar var ég svo umvafinn kærleik og umhyggju að það fór að rofa til í myrkrinu sem hafði setið í mér svo lengi. Það var svo hjúkrunarkona á spítalanum sem leiddi mig í Setrið fyrstu dagana. Það get ég seint þakkað og held að svona óslitin umhyggja og fylgni hafi skipt sköpum hjá mér. Móttökurnar í Setrinu voru þannig að það var eins og starfsfólkið hefði aldrei gert neitt annað en að hugsa um brotið fólk. Ég hef verið í Setrinu síðan og eflst með hverjum deginum sem líður. Ég er alltaf jafn feginn þegar ég kem í Setrið og sé sömu andlitin því það er ekkert sjálfsagt að fólk endist í að taka duttlungunum mínum og tíu annara mánuðum saman.
Ég er viss um að á meðan ekkert raskar þessari starfsemi og ég get komið reglulega í Setrið þá verð ég í lagi og fer að gera það sem ég er farinn að hugsa um þ.e. að mæta í fermingarveislur og annað sem ég gat ekki lengur. Ég þakka Guði fyrir að augu fólks hafi opnast fyrir þessari lausn í staðinn fyrir að setja alla undir sama hatt á “kleppi”. Mér finnst ágætt að koma hingað að spila og hitta fólk. Mér leiðist oft einn heima.
Ég er greind með geðhvarfasjúkdóm og reikna með að þurfa að vera á lyfjum það sem eftir er. Það er ekki góð tilhugsun að þurfa þess en svona er bara lífið, enginn velur sér næturstað. Setrið er í huga mínum bjargvættur minn. Ég kem þangað á hverjum degi. Það er margt sem við höfum fyrir stafni þar eins og t.d. að spila kana. Það er reyndar einn briddsspilari í hópnum sem ég finn stundum að er hundleiður að spila kana þar sem ekkert þarf að hugsa um næsta leik en hann lætur sig hafa þetta elskan. Svo föndrum við mikið og spjöllum saman. Sem dæmi má nefna að fyrir jólin í öllu jólastressinu þá var það mér mikil ánægja að koma þar. Ég einhvern vegin afstressaðist, allt var svo rólegt og gott og ljúft andrúmsloft.
Við höfum verið að gera margt skemmtilegt saman, t.d. farið í leikhús sem var rosalega gaman. Það sem stendur uppúr hjá mér eru gönguferðirnar sem við förum reglulega í, ég geri allt of lítið af því að labba, veit að það gerir mér mjög gott en það er erfitt að hafa sig af stað aleinn. Síðan er ég farin að mála myndir, byrjaði með akrýl en er komin í olíuna núna. Það er ótrúlegt hvað svona hlutir gefa manni mikið. Setrið breytir lífi mínu mjög mikið og hér er ég kynnast alveg ótrúlega góðu fólki.
Birna.Lokaorð
Fyrstu mánuðir á göngu Setursins hafa sýnt að mikil þörf er fyrir svona starfsemi út á landsbyggðinni. Setrið hefur fengið jákvæðar viðtökur hjá notendum, aðstandendum og samfélaginu í heild. Einnig hefur myndast gott samstarf við aðra aðila á svæðinu sem sinna geðheilbrigðisþjónustu s.s. Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og Geðdeildarinnar á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Það er einlæg von okkar starfsmanna og notenda Setursins að þegar tilraunatímabilinu líkur verði árangur af þessu batahvetjandi stuðningsúrræði orðinn ljós og að þessari starfsemi verði tryggt áframhaldandi brautargengi.
Erla Alfreðsdóttir, iðjuþjálfi og forstöðumaður Seturs

