Fréttir

Reynslusaga félaga.

Félagi segir frá reynslu sinni af því að veikjast.

Árið er 1992, mánuðurinn er október, dagurinn er sá 14.

Kvöld, hef ekkert sofið undanfarnar tvær nætur. Ákveð að fara í bíltúr. Hann endaði á sjúkrahúsinu. Grét alla nóttina, hágrét.

Morguninn eftir er ákveðið að senda mig til Akureyrar á P-deild, þ.e.a.s. geðdeild. Var skíthrædd að vera þar, bað um að ég yrði læst inni á næturna svo ég fengi ekki óvelkomnar heimsóknir.

Var sett á lyf í fyrsta skipti á ævinni. Greining var gert. Drottinn minn dýri, þetta líka.

Fráskilin kona með mörg börn, það var að mörgu að hyggja. Sá einnig um aldraða móður mína sem var veikburða en ótrúlega dugleg. Hún hjálpaði mér mikið með börnin. Mikið álag á mér. Auk þess var ég líka alltaf að vinna. Þraukaði.

 

1998, febrúar.

Hætti alveg að vinna, var orðin óvinnufær, orðin 75% öryrki.

Mjög eftitt að kyngja þessari stöðu. Ég var mjög fordómafull, eingöngu í minn eigin garð. Skildi mjög vel hina, sem gátu ekki unnið. En ég sjálf, mér fannst ég bölvaður ræfill,eiginlega fyrirleit sjálfa mig.

Mikil vanlíðan. Þraukaði.

 

2002,haust.

Góðu árin. Þetta tímbil er eiginlega það besta sem ég hef lifað. Þurfti voða lítið að borða, sofa. Var glöð, alltaf. Stóð mig að því að gera hluti og sjá hluti sem ég hafði aldrei gert áður. Eins og að fylgjast með þröstunum um vorið við hreiðurgerð. Njóta þess að hengja út þvott. Njóta þess að hugsa um garðinn minn. Fór í skóla, gekk mjög vel. Þurfti mikið að tala. Ofsalega gaman að vera til. Fann gleðina sem hafði verið þarna undirliggjandi í mörg ár en hafði ekki fundið fyrir henni.

Þetta tímabil endaði með hvelli, typisk ég. Hætti að sofa, varð ofsalega þreytt og datt ofan í stóran djúpan þunglyndispoll. Mikil vanlíðan, vellíðan ekki sjáanleg. Þreytt. Þraukaði.

Mánuðirnir liðu, átti góð tímabil og slæm tímabil en á heildina litið er þetta búið að vera frekar erfiður tími. Var alltaf tíma og tíma inni á sjúkrahúsi, bæði hér og á Akureyri. Þessum sjúkdómur fylgir mikil þreyta. Stundum sef ég of mikið, það er gott að sofa, engin andleg vanlíðan, bara algleymi. Er mjög sjaldan verulega ánægð, þ.e.a.s. sátt við sjálfa mig, ég er alls ekki sátt við stöðu mína í dag.

 

2007,október

Venjulegur dagur í mínu lífi.

Mánudagur: Vakna upp úr sjö. Finn kvíðann læðast í magann þar sem hann er vanur að vera. Gríman er sett upp, hún er notuð daglega og oft grátið bak við hana, enginn sér. Fer upp á heilsugæslu til að sækja lyfin mín, hitti þar allar uppáhaldskonurnar mínar sem ég er búin að þekkja lengi.Þær þekkja mig inn og út og þær eru alveg frábærar. Vinna klukkan hálf níu. Ég er í fínni vinnu, búin að vera þar í allt sumar. Gott að vera í vinnunni. Búin að vinna klukkan hálf eitt. Fer þá yfirleitt út í Setur. Mjög góð starfssemi sem fer þar fram sem hefur gert mjög góða hluti fyrir mig. Hvað gerði ég áður en Setrið opnaði, hugsa oft um það. Undanfarið hef ég verið mjög framtakslaus. Mikill leiði, mjög erfitt að gera hlutina, þetta er ekki leti, heldur er mjög erfitt að framkvæma, getur verið meiriháttar mál að skipta á rúmunum.

Seinnipartarnir eru oftast, nei alltaf erfiðastir, ljúft að flýja í svefninn. Flýja sársaukann, slæmu hugsanirnar. Ekki gott að venja sig á slíkt, hef lent í þannig stöðu. Sjálfsmat mjög lélegt. Aldrei fullkomleg sátt við sjálfa mig. Ég, huh hvað þykist ég vera.....

Kvöldin eru mismunandi, það fer eiginlega eftir því hvenær ég fer að sofa. Það kemur fyrir að þau eru bara nokkuð góð. Svefninn góður.

Fer oftast yrir daginn á kvöldin áður en ég fer að sofa. Niðurstaðan er mismunandi.

Reyni að vera í deginum í dag, það er best.

Mér er sagt að ég geti stjórnar líðan minni, hmmmm.....,er alla vega að reyna.



Mynd augnabliksins

setrid_004.jpg

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Könnun

Er "JÁ" takkinn ofvirkur hjá ţér???








Sjá niđurstöđur
Sjá allar kannanir

Póstlistar


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning