Fréttir

Réttindagćsla fyrir fatlađ fólk

Guđrún Pálmadóttir
Guđrún Pálmadóttir

Réttindagæslumaður fatlaðra verður með viðtalstíma á milli kl. 14 og 16 fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði á Húsavík svo lengi sem veður leyfir.  Viðtölin fara fram í húsnæði verkalýðsfélagsins Framsýnar. 

Best er að hafa samband fyrir fram og semja um viðtal hjá Guðrúnu Pálmadóttur réttindagæslumanns á Norðurlandi á netfangið gudrun.palmadottir@rett.vel.is eða í síma 858-1959.  Guðrún hefur aðsetur á skrifstofu Vinnueftirlitsins, Skipagötu 14 (4. hæð) á Akureyri.

Réttindagæslumaður er þessa daga á Húsavík til áramóta 2011-2012:

  • 1. september
  • 7. október
  • 3. nóvember
  • 1. desember

Í maí 2011 tók til starfa nýr réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Norðurlandi. Starfið er á vegum Velferðarráðuneytisins og nýtur réttindagæslumaður lögfræðilegrar aðstoðar þaðan. Svæðið sem nýtur þjónustu réttindagæslumanns er frá Hrútafirði til vesturs og að Bakkafirði til austurs.

Á sama tíma og starfshlutfall réttingæslumanns var aukið í 75%, þá voru skyldur réttindagæslumanns einnig auknar frá því sem áður var skilgreint í lögum.  Það starf sem réttindagæslumaður hefur með höndum samkvæmt reglugerðum í dag er:
  • Fylgjast með högum fatlaðs fólks og aðstoða og styðja það við hvers konar réttindagæslu hvort sem það er vegna þjónustu, einkamála eða einkafjármuna.
  • Fatlað fólk getur leitað til réttindagæslumanns með hvaðeina sem varðar réttindi þess.
  • Réttindagæslumaður veitir, þeim sem leita til hans, stuðning og aðstoðar hann við að leita réttar síns.
  • Réttindagæslumaður getur tekið upp mál að eigin frumkvæði.
  •  Hver sá sem telur að brotið sé á réttindum fatlaðs fólks getur tilkynnt það réttindagæslumanni.
  • Réttindagæslumaður stendur fyrir fræðslu fyrir fatlað fólk og þá sem starfa með því.

Sjá nánar um hlutverk réttindagæslumanns fatlaðs fólks í lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk; http://www.althingi.is/altext/139/s/1806.html

 

Guðrún Pálmadóttir er skipuð réttindagæslumaður á Norðurlandi til 1 árs. Hún hefur unnið sem þroskaþjálfi og ráðgjafi frá útskrift 1988 úr Þroskaþjálfaskólanum. Hún var uppeldislegur og meðferðalegur ráðgjafi í sínu starfi fyrir Félagsþjónustu Húnvetninga á árunum 1988- 2005. Árið 2004 lauk hún námi í EHÍ í verkefnastjórnun og vann frá 2005 - 2007 við að skipuleggja heimaþjónustu hjá Akureyrarbæ. Hún hefur verið að vinna við stuðning innan félagsmálakerfisins og fleiri verkefni eftir að hafa lokið BA í sálfræði vorið 2010.

 



Mynd augnabliksins

setrid_085.jpg

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Könnun

Er "JÁ" takkinn ofvirkur hjá ţér???








Sjá niđurstöđur
Sjá allar kannanir

Póstlistar


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning