Fréttir

Mín réttindi.

Að þekkja og nota grunnréttindi þín.

Sem fullorðnar manneskjur höfum við öll sérstök grunnréttindi. Oft höfum við annað hvort gleymt þeim eða réttindin ekki kynnt fyrir okkur meðan við vorum börn. Að þjálfa með sér sjálfstyrka hegðun eða ákveðni felur í sér að þú, eins og sérhver önnur mannvera, átt rétt til allra þeirra atriða sem nefnd eru í listanum hér að neðan,"Mín réttindi". Sjálfsstyrkur eða ákveðni felur einnig í sér það verk að æfa þessi réttindi í aðsræðum þar sem þeim er ógnað á einhvern hátt eða jafnvel fótum troðin. Lestu yfir listann og íhugaðu þinn eigin vilja til að æfa sérhvert þessara atriða.

Mín réttindi.

1. Ég hef rétt til að biðja um það sem ég vil.

2. Ég hef rétt til að segja "nei" við beiðnum eða kröfum sem ég get ekki sinnt.

3. Ég hef rétt á að láta í ljós allar mínar tilfinningar,bæði jákvæðar og neikvæðar.

4. Ég hef rétt til að skipta um skoðun.

5. Ég hef rétt á að gera mistök og þarf ekki að vera fullkomin/n.

6. Ég hef rétt til að fylgja eigin gildum og viðhorfum.

7. Ég hef rétt á að segja "nei" við hverju sem ég er ekki tilbúin til, hverju sem er óáreiðanlegt eða óvirðir mín gildi.

8. Ég hef rétt til að ákveða mína eigin forgangsröð.

9. Ég hef rétt til að gangast ekki í ábyrgð fyrir hegðun annarra,verkum,tilfinningum eða vandamálum þeirra.

10. Ég hef rétt á að vænta heiðarleika af öðrum.

11. Ég hef rétt á að reiðast einhverjum sem mér þykir vænt um.

12. Ég hef rétt á að vera einstök/einstakur.

13. Ég hef rétt á að segja "ég er hrædd/ur".

14. Ég hef rétt á að segja "ég veit það ekki".

15. Ég hef rétt á að afsaka ekki hegðun mína né gefa á henni skýringar.

16. Ég hef rétt til að taka ákvarðanir sem byggjast á tilfinningum mínum.

17. Ég hef rétt til að hafa þörf á tíma og svigrúmi fyrir sjálfa/n mig.

18. Ég hef rétt til að slá á létta strengi og leika mér.

19. Ég hef rétt til að vera heilbrigðari en aðrir sem ég umgengst.

20. Ég hef rétt til að vera í umhverfi sem er laust við andlegt eða líkamlegt ofbeldi.

21. Ég hef rétt á að eignast vini og líða vel innan um fólk.

22. Ég hef rétt til að breytast og vaxa.

23. Ég hef rétt til að aðrir virði mínar þarfir og langanir.

24. Ég hef rétt á að aðrir sýni mér virðingu.

25. Ég hef rétt á að vera hamingjusöm/hamingjusamur.

 

Ljósritaðu framangreindan lista og límdu hann upp á áberandi stað. Gefðu þér daglega tíma til að lesa hann yfir og að lokum muntu fallast á að þú átt heimtingu á sérhverju því sem þar er tilgreint.



Mynd augnabliksins

picture_081.jpg

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Könnun

Er "JÁ" takkinn ofvirkur hjá ţér???








Sjá niđurstöđur
Sjá allar kannanir

Póstlistar


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning