Lífsreglurnar fjórar
Vertu flekklaus í orði
Talaðu af heilindum. Segðu aðeins það sem þú meinar. Passaðu að nota orðið ekki gegn þér eða til að slúðra aðra. Beindu krafti orða þinna í átt að sannleika og kærleika.
Ekki taka neitt persónulega
Ekkert sem annað fólk gerir er þín vegna, það sem aðrir segja er speglun af þeirra eigin veruleika og þeirra hugarástandi. Þegar þú hættir að taka skoðanir og gjörðir annarra nærri þér verður þú ekki lengur fórnarland ónauðsynlegrar vanlíðunar.
Ekki draga rangar ályktanir
Hafðu hugrekki til að spyrja spurninga og til að biðja um það sem þú raunverulega vilt. Hafðu samskipti þín vegna við aðra svo skýr að þú komist hjá misskilningi og sárindum. Þessi eina lífsregla getur breytt lífi þínu.
Gerðu alltaf þitt besta
Þitt besta mun breytast á hverju andartaki við ólíkar aðstæður. Burtséð hverjar kringumstæður eru, gerðu alltaf þitt besta. Þú munt hætta að fordæma og fara illa með þig og fyllast eftirsjá.

