Kynning frá Þekkingarneti Þingeyinga.
miðvikudagur 8.sep.10 12:12 - Lestrar 216
Mánudaginn 13. september klukkan eitt verða á Setrinu þær Ingibjörg Árnadóttir og Signý Valdimarsdóttir frá Þekkingarneti Þingeyinga með kynningu á Grunnmenntaskólanum, dagskóla sem spennandi er að skoða. Tilgangurinn er að stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms. Áhersla er lögð á námstækni og að námsmenn efli sjálfstraust sitt. Meta má námið til allt að 24 eininga í framhaldsskóla. Allir áhugasamir Setverjar mæti.
Upplýsingar um þessa braut má nálgast á Setrinu og einnig á heimasíðu Þekkingarnetsins
http://www.hac.is/news.asp?id=554&news_ID=782&type=one

