Jóla hvað.
Í sambandi við baksturinn ákvað ég að sleppa honum. Loks rann upp aðfangadagur og ég í skapi eins og Grinch. Í hádeginu fórum við í möndlugraut til tengdó sem var allt í lagi. Barnabarnið fékk möndluna og allir virtust skemmta sér. Eftir matinn var mér farið að líða eins og illa gerðum hlut þannig að ég ákvað að rölta með síðustu kortin til fólks. Um fjögur leitið komst ég heim í ró og fór í heitt og langt bað. Tók mig til fyrir kvöldið sem við ætluðum að eyða hjá tengdó. Eftir matinn rifu allir upp pakkana sína og var ég mjög ánægð með allt sem ég fékk en jólaskapið lét ekki sjá sig.
Jóladagur: Rétt upp úr hádegi fórum við til foreldra minna í hádegismat og kaffi. Þar var allt við það sama foreldrar mínir máttu rétt vera af því að heilsa áður en þau fóru í messu. Eyddum við tímanum með bræðrum mínum yfir mynd. Loks komu gömlu hjúin aftur úr messunni og fengum við kaffi og kökur eftir það var komin tími til að fara heim. Þegar heim var komið leið mér ekki sem best enda orðin lasin. Kallin fór til mömmu sinnar að borða enda ég algjörlega lystarlaus. LOKSINS var ég ein í ró og friði og fékk ég að vera það einnig á öðrum degi jóla. Ef ekki hefði verið fyrir vanlíðanina þá hefði þetta verið besti tíminn yfir jólin.
p.s. Jólaskapið er ekki enn fundið?

