Fréttir

Hugleiðingar hjá 48 ára gamalli konu sem er að byrja í framhaldsskóla

Hugleiðingar hjá 48 ára gamalli konu sem er að byrja í framhaldsskóla.

 

Sit hérna alein og  bíð eftir tíma.  Mér liður mjög vel í skólanum.  Ég er 48 ára gömul og er líklega sú elsta í skólanum í dag og þó það er ein sem  er eldri hún er fimmtug.  Ég er í íslensku, sögu, landafræði, félagsfræði og þýzku, samtals fimmtán einingar.  Herdís  íslenskukennari er  mætt og vonandi kemur hún með prófið sem var í gær.  Jú prófið kemur.  Orðagaldur er í dag, svo kemur sagan þar á eftir, hún er mjög skemmtileg.  Hún er í fyrirlestrarformi .  Valdimar kennir,  hann er mjög skilvirkur og góður fyrirlesari.  Síðan kemur félagsfræði  (stjórnmálafræði).  Síðast vorum við að gera verkefni um ICESAVE,

Yessss fékk 9,7, frábært mjög ánægð með það og  YESSS í stafsetningarprófi fékk ég 9.

Núna er verið að spjalla og afhenda gögn.  Það þarf að skila þessum prófum til baka.  Sit og hlusta, var að pússa gleraugun og bíð eftir að eitthvað gerist.  Skvaldur í bekknum.

14:10  FEL.  Bíð eftir Ingólfi.  Hann ætlar að vera með glærur.  Fínt að slaka aðeins á.  Hringir bjallan

Birna Hreiðarsdóttir



Mynd augnabliksins

dsc00554.jpg

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Könnun

Er "JÁ" takkinn ofvirkur hjá þér???








Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Póstlistar


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning